Harry Kane hefur skrifað undir nýjan samning við Bayern Munchen sem gildir til sumarsins 2029.
Enski framherjinn, sem er 33 ára gamall, verður launahæsti knattspyrnumaður Evrópu þegar kemur að grunnlaunum með nýja samningnum.
Samkvæmt helstu miðlum fær hann um 21 milljón punda á ári fyrir skatt, áður en horft er til bónusa. Er þetta stærsti samningur sem Bayern hefur gert við leikmann.
Kane hefur farið á kostum síðan hann kom frá Tottenham árið 2023. Hann hefur skorað 156 mörk í 161 leik og hlaut Ballon d'Or á dögunum.