433

Hjartnæm yfirlýsing Ronaldo - „Þá var þetta þess virði“

Mynd
Ronaldo og Georgina.

Það var greint frá því í morgun að Cristiano Ronaldo væri að hætta með portúgalska landsliðinu eftir 23 ár feril. Hefur hann nú birt hjartnæma yfirlýsingu.

„Dagurinn er runninn upp þar sem ég skila treyjunni og fyrirliðabandinu sem tilheyra okkur öllum. Þetta var ekki auðveld ákvörðun því sumar ákvarðanir eru ekki teknar með höfðinu einu saman, heldur líka hjartanu,“ segir hinn 41 árs gamli Ronaldo.

Ákvörðunin kemur í kjölfar deilna hans við Jorge Jesus, landsliðsþjálfara Portúgals, en Ronaldo yfirgaf landsliðshópinn í september eftir ágreining um hlutverk sitt.

Ronaldo hóf landsliðsferilinn í ágúst 2003 og hefur síðan leikið 234 landsleiki og skorað 146 mörk. Hann varð Evrópumeistari með Portúgal árið 2016 og vann Þjóðadeildina 2019 og 2025.

„Ég vildi vinna, verða bestur og skrifa söguna. Ég gerði alltaf miklar kröfur til sjálfs mín og gaf allt sem ég átti fyrir þessa treyju.“

Ronaldo þakkar jafnframt samherjum sínum, þjálfurum, fjölskyldu og stuðningsmönnum fyrir samfylgdina.

„Ef ég hef einhvern tímann glatt ykkur, ef eitt af mörkunum mínum fékk ykkur til að faðma einhvern, gleyma áhyggjum eða finna fyrir stolti yfir landinu okkar, þá var þetta allt þess virði,“ segir Ronaldo.