433

Dánarorsök hins látna á Tenerife gefin út

Mynd
Fyrir utan heimavöll Tenerife, þar sem Jesus de Miguel er minnst.

Niðurstöður bráðabirgðakrufningar hafa leitt í ljós að Jesus de Miguel, leikmaður Tenerife, lést af völdum áverka á brjóstkassa eftir árekstur við markvörð Andorra á mánudagskvöld.

De Miguel, sem var þrítugur, lenti í hörðum árekstri við Jesus Owono á lokamínútum leiks liðanna. Bráðaliðar voru fljótir á vettvang og var hann keyrður á sjúkrahús en ekki tókst að bjarga lífi mannsins.

Samkvæmt spænskum fjölmiðlum í dag er dánarorsökin skilgreind sem áverkar á brjóstkassa af slysförum. Frekari rannsóknir standa þó enn yfir.

Owono tjáði sig um harmleikinn í gær og sagðist eiga afar erfitt með að átta sig á því sem gerðist.

„Þetta hafa verið erfiðustu dagar lífs míns. Ég á erfitt með að finna réttu orðin og skilja það sem hefur gerst. Ég finn fyrir gríðarlegum sársauka vegna fráfalls Jesus,“ sagði markvörðurinn.

Lögregla rannsakar atvikið en samkvæmt saksóknara á Tenerife er afar ólíklegt að Owono verði ákærður.

De Miguel lætur eftir sig eiginkonu og unga dóttur.