433

Atburðir vikunnar komu Arnari ekki á óvart - „Ég sendi það á bróður minn“

Mynd
Getty Images

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari er mikill stuðningsmaður Manchester United. Hann hefur því ekki átt sjö dagana sæla undanfarið en það kom honum þó ekki á óvart þegar United sneri 0-2 stöðu gegn Roma við í 3-2 sigur í Meistaradeildinni í vikunni.

„Ég sendi á bróður minn, sem er mikill Arsenal-maður helvítið á honum svo hann er sáttur þessa dagana, að við værum að fara að vinna þetta. Ég er búinn að fylgjast með liðinu frá því ég var tíu ára og svona kvöld á Old Trafford, comeback-kvöld, það jafnast ekkert á við það. Þú finnur það bara þegar þú ert United stuðningsmaður, aðrir finna það ekki,“ sagði Arnar léttur í samtali við 433.is. 

Mikill hiti hefur verið á United, stjóranum Michael Carrick og ekki síst eigendum félagsins. „Staðan er enn þá nokkuð svört en vonandi verður þessi leikur einhver innspýting,“ sagði Arnar.

Ítarlegt viðtal við hann má sjá í spilaranum, en þar er aðallega rætt um íslenska karlalandsliðið og komandi leiki.