433

Arnar: „Miklu alvarlegra en menn gerðu sér grein fyrir“

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Elías Rafn Ólafsson verður áfram fjarverandi þegar íslenska karlalandsliðið mætir Búlgaríu og Lúxemborg í Þjóðadeildinni síðar í þessum mánuði.

Skömmu fyrir síðasta landsleikjaglugga gekkst Elías undir aðgerð á nýra eftir meiðsli sem hann varð fyrir mig Midtjylland í danska boltanum. 

Mynd
Elías Rafn Ólafsson. Mynd DV/KSJ

Arnar Gunnlaugsson landslipsþjálfari tjáði sig um stöðuna á markverðinum á blaðamannafundi í gær, í kjölfar þess að hafa opinberað hóp sinn fyrir komandi leiki.

„Það var bara miklu alvarlegra en menn gerðu sér grein fyrir. Hann er nýbyrjaður að hreyfa sig og æfa, þó ekki í miklum mæli. Ég þori ekki að fara með dagsetningu á því hvenær hann verður klár,“ sagði Arnar.

Elías hafði staðið sig frábærlega með landsliðinu og var kostur númer eitt hjá Arnari fyrir meiðslin. Hákon Rafn Valdimarsson stóð sig þó frábærlega þegar hann kom inn í hans stað í síðasta verkefni.