433

Þurftu að biðjast afsökunar eftir viðtal við Bruno Fernandes

Mynd
Getty Images

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, talaði frá hjartanu í viðtali eftir 3-2 sigur liðsins á Roma í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

United hafði lent 0-2 undir en tókst að snúa leiknum sér í hag og vinna sinn fyrsta sigur í tíu leikjum. Bruno skoraði fyrsta mark United áður en Matheus Cunha tryggði sigurinn með tveimur mörkum undir lokin.

Eftir leikinn var Bruno spurður hvort sigurinn hefði bjargað starfi Michael Carrick, stjóra liðsins, sem hefur verið undir mikilli pressu.

„Við þurfum ekki að bjarga starfi neins. Félagið þurfti á þessum sigri að halda, leikmennirnir þurftu á honum að halda. Við höfum lagt gríðarlega hart að okkur til að komast út úr þessari stöðu saman,“ sagði Bruno.

Portúgalinn ræddi einnig samband sitt við Carrick en hann hafði áður gagnrýnt stjórann opinberlega og var í kjölfarið settur á bekkinn.

„Það hefur verið erfitt. Það hefur verið mikið af vangaveltum í fjölmiðlum og fullt af lygum um það sem hefur gerst milli mín og stjórans. Stjórinn ákvað að setja mig á bekkinn vegna þess að ég var ekki að standa mig. Það var sanngjarnt. Allir töldu þetta vera refsingu fyrir það sem ég hafði sagt og ef svo var, þá var það rétt hjá honum.“

Bruno sagðist bera fullt traust til Carrick og starfsliðs hans þrátt fyrir það sem á undan hafði gengið.

„Ég hef trú á öllum hér og markmið mitt er að vinna hvern einasta helvítis leik sem ég á fram undan.“

Ummælin komu í beinni útsendingu Amazon Prime og varð þáttastjórnandinn Gabby Logan að biðjast afsökunar á orðbragði fyrirliðans að viðtalinu loknu.