433

Þorlákur látinn fara

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Þorlákur Árnason hefur verið látinn fara frá Al-Ahli, en hann var þjálfari kvennaliðsins.

Tímabilið hafði ekki byrjað nógu vel undir stjórn Láka, sem tók við í sumar. Því ákvað félagið að ráðast í breytingar og er Serbinn Dragan Vukovic tekinn við. 

Þorlákur er afar reynslumikill þjálfari og hefur gert góða hluti hér heima og erlendis. Síðast þjálfaði hann karlalið ÍBV hér á landi við góðan orðstýr.