433

Skorar á Jamie Carragher í boxbardaga - Vonar að hann sé klár

Mynd

Wayne Rooney, fyrrverandi framherji Manchester United og enska landsliðsins, hefur skorað á Jamie Carragher í hnefaleikabardaga.

Rooney lét þessi skemmtilegu ummæli falla þegar hann heimsótti gamla hnefaleikafélagið sitt í Liverpool, þar sem hann æfði sem ungur drengur.

Rooney hefur lengi haft mikinn áhuga á hnefaleikum og virðist nú vilja prófa sig gegn fyrrverandi varnarmanni Liverpool.

„Mig langar fokking mikið til að fá Carragher inn í hringinn, svo þið megið alveg segja honum það,“ sagði Rooney.

Mynd

Hann horfði síðan beint í myndavélina og sendi Carragher skýr skilaboð.

„Carra, mig langar virkilega að fá þig inn í hringinn.“

Þeir Rooney og Carragher eru báðir þekktir fyrir að liggja sjaldan á skoðunum sínum.

Ekki liggur fyrir hvort Carragher ætli að taka áskoruninni.