433

Myndband af banaslysinu frá nýju sjónarhorni vekur óhug - Áhorfendur virtust strax átta sig á stöðunni

Mynd

Nýtt myndband af samstuðinu sem varð spænska knattspyrnumanninum Jesus de Miguel að bana hefur vakið athygli og óhug á samfélagsmiðlum. Myndbandið var tekið úr stúkunni í leik Tenerife og Andorra á mánudagskvöld.

De Miguel lést í gær, þrítugur að aldri, eftir að hafa fengið hné markvarðarins Jesus Owono í brjóstið undir lok leiksins. Hann hneig niður á völlinn og þurfti aðhlynningu sjúkraliða áður en hann var fluttur á sjúkrahús. Því miður var ekki hægt að bjarga lífi hans.

Erlendir miðlar víða fjalla um nýja myndbandið sem sýnir atvikið frá öðru sjónarhorni en sjónvarpsmyndavélarnar. Þar má einnig heyra sterk viðbrögð stuðningsmanna Tenerife við árekstrinum, en þeir virtust strax átta sig á að brotið hafi verið alvarlegt.

Myndbandið er hér að neðan.