433

Arteta segist eiga risastórt safn af gögnum

Mynd
Getty Images

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segist eiga gríðarlegt safn myndbanda af treyj togi og öðrum brotum sem ekki hefur verið refsað fyrir í ensku úrvalsdeildinni.

Ummælin koma í kjölfar umdeilds atviks í 1-0 sigri Arsenal gegn Liverpool á sunnudaginn.

Þar togaði Jurrien Timber í treyju Alexander Isak innan vítateigs en hvorki dómarinn Andy Madley né VAR töldu ástæðu til að dæma vítaspyrnu.

„Ég á fullt af myndböndum af treyj togi og slíkum atvikum,“ sagði Arteta.

„Ég á risastórt safn sem við getum sýnt til að minna alla á hvað önnur lið hafa þurft að þola.“

Arteta hefur áður viðurkennt að safna myndböndum af öðrum þjálfurum sem fara út fyrir tæknisvæði sitt án þess að fá refsingu.

Á sama blaðamannafundi færði hann Arsenal einnig góðar fréttir.

William Saliba er að snúa aftur eftir bakmeiðsli og gæti leikið gegn Slavia Prag í Meistaradeildinni.

„Honum líður mjög vel og hann er tilbúinn,“ sagði Arteta.