UEFA, hefur ákveðið að mínútuþögn verði fyrir alla leiki í Evrópukeppnum í þessari viku til minningar um Jesus de Miguel, framherja Tenerife.
De Miguel lést aðeins þrítugur eftir hörmulegt slys í leik gegn Andorra í gær. Fráfall hans hefur vakið mikla sorg í knattspyrnuheiminum.
Mínútuþögnin verður meðal annars fyrir leiki í Meistaradeildinni í kvöld og annað kvöld, sem og í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni á fimmtudag.
Aleksander Ceferin, forseti UEFA, sendir samúðarkveðju til aðstandenda De Miguel í yfirlýsingu og segir erfitt að koma sorginni í orð.