Liverpool og Manchester United hafa bæði mikinn áhuga á Adam Wharton, miðjumanni Crystal Palace, sem er talinn líklegur til að yfirgefa félagið næsta sumar.
Football Insider fjallar um málið en þessi 22 ára gamli Englendingur var einnig eftirsóttur síðasta sumar. Palace neitaði hins vegar að selja hann.
Fleiri stórlið hafa sýnt Wharton áhuga en talið er að verðmiðinn hafi aðeins lækkað undanfarið þar sem leikmaðurinn hefur ekki heillað á sama hátt og síðustu tímabil.
Áður hefur verið talað um að verðmiðinn á Wharton sé um 100 milljónir punda en ku hann vera upp undir 80 milljónir eins og staðan er. Samningur leikmannsins við Palace rennur út eftir um tvö og hálft ár.