433

United vill öflugan miðjumann en samkeppnin gæti orðið hörð

Mynd
Getty Images

Manchester United hefur áhuga á Pablo Barrios, miðjumanni Atletico Madrid, en Paris Saint-Germain er einnig sagt fylgjast með leikmanninum.

Samkvæmt Teamtalk hefur United þegar spurst fyrir um þennan 23 ára gamla Spánverja en Luis Enrique, stjóri Evrópumeistara PSG, er mikill aðdáandi hans og gæti lokkað hann til Parísar.

Barrios hefur heillað með frammistöðu sinni á leiktíðinni og talið er að fleiri stórlið gætu borið víurnar í hann. 

Barrios er þó samningsbundinn Atletico til ársins 2030 og er riftunarákvæði í samningi hans upp á 430 milljónir punda. Samningsstaða spænska félagsins er því afar sterk.