Níu leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í kvöld og eins og alltaf var nóg um mörk og dramatík.
Manchester United lenti 0-2 undir gegn Roma á Old Trafford. Matias Soulé kom gestunum yfir á 11. mínútu og Donyell Malen bætti við öðru marki úr vítaspyrnu. Heimamenn voru baulaðir af velli í hálfleik en sneru heldur betur við blaðinu eftir hlé.
Bruno Fernandes minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 58. mínútu áður en Matheus Cunha jafnaði á 83. mínútu. Cunha skoraði svo aftur aðeins þremur mínútum síðar og tryggði United 3-2 sigur. Brasilíumaðurinn fékk hins vegar að líta rauða spjaldið undir lok leiks.
PSG vann frábæran 6-0 útisigur á Villarreal. Franska liðið var komið í 4-0 áður en fyrri hálfleik lauk og bætti svo við tveimur mörkum eftir hlé. Villarreal átti engin svör við sóknarleik Evrópumeistaranna.
Barcelona vann einnig öruggan sigur þegar Aston Villa kom í heimsókn. Lamine Yamal kom Börsungum yfir og Raphinha bætti við tveimur mörkum í 3-0 sigri spænska liðsins.
Bayern Munchen vann 2-0 útisigur á Atletico Madrid. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom hinn 18 ára gamli Lennart Karl gestunum yfir á 54. mínútu þegar hann vann boltann inni í vítateignum og vippaði yfir Jan Oblak. Konrad Laimer bætti svo við öðru marki með þrumuskoti og tryggði Bayern sigurinn.
Hákon Arnar Haraldsson lék allan leikinn fyrir Lille sem gerði markalaust jafntefli við Bodo/Glimt í Noregi.
Öll úrslit kvöldsins:
Galatasaray 2-0 Stuttgart
Shakhtar Donetsk 0-1 Sporting
Atletico Madrid 0-2 Bayern Munchen
Barcelona 3-0 Aston Villa
Bodø/Glimt 0-0 Lille
Feyenoord 0-3 Inter
LASK 4-0 Slovan Bratislava
Manchester United 3-2 Roma
Villarreal 0-6 PSG