Steven Gerrard, fyrrum fyrirliði Liverpool, telur að Lisandro Martinez sé að reyna að knýja fram brottför frá Manchester United í janúar.
Argentínski varnarmaðurinn hefur verið harðlega gagnrýndur eftir að hafa fengið rautt spjald í 2-0 tapi United gegn Chelsea um helgina.
Martinez gagnrýndi einnig Jason Wilcox, yfirmann knattspyrnumála hjá United, opinberlega í síðasta mánuði.
Gerrard telur að hegðun varnarmannsins geti verið meðvituð tilraun til að komast frá félaginu.
„Ég hef séð þetta gerast áður og það kæmi mér ekkert á óvart. Hann gæti verið að hugsa að besta leiðin til að komast í burtu sé að skapa vandamál,“ sagði Gerrard í Overlap Daily.
„Frammistaða hans undanfarnar vikur hefur verið skelfileg.“
Gerrard sparaði ekki stóru orðin þegar hann ræddi brottvísun Martinez gegn Chelsea.
„Hann hefur brugðist stuðningsmönnum, félaginu og liðsfélögum sínum. Hann kostaði liðið stig og gerði það þrátt fyrir að vera með þjálfara sem hefur stutt hann.“
Gerrard sagði hegðun Martinez hafa verið eigingjarna og gagnrýndi hann fyrir að kenna dómaranum um brottvísunina.
„Þetta var allt saman egó. Hann labbaði af velli eins og hann væri fórnarlambið.“
Michael Carrick hefur hins vegar sagt að hann hafi engar áhyggjur af skuldbindingu Martinez við félagið.