433

Nýlega hættur - Skellti sér til New York og tími hans í maraþoni vekur athygli

Mynd

James Milner, fyrrum leikmaður Liverpool og Manchester City, sýndi að hann er enn í frábæru líkamlegu formi þegar hann tók þátt í New York-maraþoninu um helgina.

Milner, sem er fertugur og lagði skóna á hilluna í sumar, hljóp sitt fyrsta maraþon á þremur klukkustundum, níu mínútum og fjórum sekúndum.

Englendingurinn hljóp til styrktar góðgerðarsamtökum sínum, James Milner Foundation, sem hafa safnað yfir 1,3 milljónum punda til góðgerðarmála.

Milner vakti athygli þegar hann greindi frá því að hann hefði notað gervigreind til að útbúa æfingaáætlun fyrir hlaupið.

„Lengsta hlaupið mitt á æfingum var rúmlega 32 kílómetrar. Ég notaði síðan aðallega gervigreind til að skipuleggja æfingarnar,“ sagði Milner.

Hann segir maraþonundirbúninginn hafa hjálpað sér að aðlagast lífinu eftir knattspyrnuferilinn.

Milner vann ellefu stóra titla á ferlinum, þar á meðal ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu.

Hann útilokar ekki að hlaupa fleiri maraþon í framtíðinni.