433

Mourinho mikill aðdáandi leikmanns Arsenal - Hafa engan áhuga á að selja

Mynd

Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, er mikill aðdáandi Riccardo Calafiori, varnarmanns Arsenal, og vill reyna að fá hann til félagsins næsta sumar.

Samkvæmt Teamtalk hefur Real Madrid þegar spurst fyrir um þennan 24 ára gamla Ítala, sem hefur slegið í gegn með Arsenal.

Mourinho sér fyrir sér að Calafiori geti verið vinstri bakvörður Real Madrid næstu árin og þá heillar það spænska félagið einnig að kappinn geti leyst stöðu miðvarðar.

Arsenal vill þó alls ekki selja Calafiori. Hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2029 og er til skoðunar að framlengja þann samning.

Ljóst er að hugsanlegt kaupverð gæti farið nálægt 100 milljónum punda.