433

Leyndi vinnuveitendur um þetta vandamál sitt - Óttaðist að missa starfið

Mynd

Stephen Warnock, fyrrum leikmaður Liverpool og Aston Villa, hefur greint frá því að hann hafi falið flogaveiki sína fyrir Liverpool þegar hann var ungur leikmaður hjá félaginu.

Warnock, sem er 44 ára, ræddi veikindin í viðtali við BBC Radio 5 Live og viðurkenndi að hann hefði óttast að félagið myndi losa sig við hann ef upp kæmist um ástand hans.

„Ég var dauðhræddur við að segja Liverpool frá þessu. Ég hélt að ef þeir vissu að ég væri með þennan sjúkdóm myndu þeir losa sig við mig,“ sagði Warnock.

Hann rifjaði upp óhugnanlegt atvik þegar hann fékk flogakast og missti meðvitund.

„Ég sat við tölvu og það næsta sem ég man er að vakna á sjúkrahúsi. Ég hafði ekki hugmynd um hvernig ég komst þangað.“

Vinir hans kölluðu á sjúkrabíl eftir að hann fékk flogakastið.

Warnock segir að óvissan hafi verið verst þar sem hann vissi aldrei hvað kæmi flogunum af stað.

„Ég var hræddur um að þetta myndi gerast inni á fótboltavellinum.“

Warnock fékk síðast flogakast þegar hann var 14 ára og þurfti aldrei að taka lyf vegna sjúkdómsins.

„Ég var heppinn að vaxa upp úr þessu. Þetta er í raun í fyrsta sinn sem ég tala opinberlega um þetta.“

Warnock lagði skóna á hilluna árið 2018 eftir langan feril í ensku knattspyrnunni.