433

Harmleikurinn á Tenerife: Sá látni skilur eftir sig eiginkonu og ungbarn - Leið vel á eyjunni og tók stóra ákvörðun í sumar

Mynd

Jesus de Miguel, framherji Tenerife sem lést aðeins þrítugur eftir hörmulegt slys í leik gegn Andorra í gær, skilur eftir sig eiginkonu og unga dóttur.

Meira
Harmleikur á Tenerife - Knattspyrnumaðurinn lést eftir höggið í leiknum

Spænska sjónvarpsstöðin Antena 3 fjallar um manninn á bak við knattspyrnumanninn en De Miguel, sem var kallaður Demi, hafði eignast dóttur fyrir um einu og hálfu ári.

De Miguel fæddist í Madríd og hafði lengst af leikið með minni félögum á Spáni. Hann vann sig hægt og bítandi upp metorðastigann og átti stóran þátt í að koma bæði Castellon og Tenerife upp í spænsku B-deildina.

Fjallað er um að ferill hans hafi ekki verið hefðbundinn, það hafi tekið hann tíma að koma sér á framfæri. De Miguel þurfti að hafa mikið fyrir hlutunum og hafði á síðustu árum uppskorið árangur erfiðisins.

Hann gekk til liðs við Tenerife sumarið 2025, skömmu eftir að hann varð faðir, og hafði fest sig í sessi hjá félaginu.

Framherjinn hafði raunar fengið tilboð frá öðrum félögum síðasta sumar en kaus að vera áfram á Tenerife, þar sem hann hafði komið sér vel fyrir ásamt fjölskyldu sinni.

Fráfall hans er mikið áfall fyrir spænskan fótbolta, samfélagið á Tenerife og víðar 

Fjölskylda De Miguel þakkar fyrir þann mikla stuðning sem henni hefur borist en óskar jafnframt eftir friði á þessum erfiðu tímum.