433

Hakkar stjörnuna í sig - „Algjör loddari“

Mynd
Lisandro Martinez, leikmaður Manchester United, og Muri Lopez, maki hans.

Nicky Butt, fyrrverandi leikmaður Manchester United, er allt annað en sáttur við Lisandro Martinez, varnarmann liðsins, og telur að félagið ætti að losa sig við hann.

Martinez fékk tvö gul spjöld á aðeins 83 sekúndum í 2-0 tapi United gegn Chelsea um helgina og var rekinn af velli. Butt lét varnarmanninn heyra það í hlaðvarpinu Football Uncensored.

„Þessi náungi er algjör loddari. Frammistaða hans hefur verið afleit,“ sagði Butt og sakaði Martinez um að hafa vísvitandi látið reka sig af velli.

„Hann notaði olnbogann því hann er ekki nógu sterkur til að verjast almennilega. Hann ákvað bara að svindla, setja olnbogann í andlitið á einhverjum og láta reka sig af velli.“

Butt gagnrýndi Martinez einnig fyrir að hafa tjáð sig opinberlega um frammistöðu samherja sinna og leikmannakaup félagsins á dögunum.

„Ef þetta hefði gerst á mínum tíma hefði hann fengið að heyra það rækilega. Hver heldur hann að hann sé að tala svona um aðra miðað við eigin frammistöðu?“

Butt telur að Martinez ætti að vera meðal þeirra fyrstu sem United losar sig við þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.