Arsenal vann 1-0 sigur á Liverpool á Anfield um helgina þar sem Kai Havertz skoraði eina mark leiksins. Steven Gerrard var afar hrifinn af frammistöðu Arsenal þrátt fyrir að liðið hafi ekki sýnt sínar bestu hliðar sóknarlega.
„Þetta var virkilega fagmannleg frammistaða. Þeir eru ótrúlega erfiðir viðureignar og geta unnið leiki á mismunandi hátt,“ sagði Gerrard í þættinum The Overlap.
„Svona vinnur maður deildina. Með því að fara á staði eins og Anfield, standa saman, sýna styrk og finna leið til að vinna.“
Gerrard telur að sigurinn gæti reynst afar mikilvægur þegar upp verður staðið.
„Ég held að þeir vinni deildina, ég hef ekki skipt um skoðun síðan tímabilið hófst.“
Arsenal er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 24 stig eftir níu leiki, þremur stigum á undan Manchester City og níu stigum á undan Liverpool.