Ungverska fyrirsætan Viktoria Varga hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum eftir að hafa birt myndir af sér í hrekkjavökubúningi.
Varga, sem er 31 árs, var áður gift ítalska knattspyrnumanninum Graziano Pelle sem gerði garðinn frægan með Southampton í ensku úrvalsdeildinni. Hefur hún síðan verið reglulegur gestur á síðum enskra götublaða.
Fyrirsætan, sem er með rúmlega 600 þúsund fylgjendur á Instagram, var í kattarbúning á hrekkjavökunni og voru aðdáendur hrifnir.
Varga og Pelle kynntust árið 2012 þegar Ítalinn lék með Feyenoord í Hollandi. Þau gengu í hjónaband árið 2022 en skildu árið 2024 eftir tólf ára samband.
Pelle lék með Southampton á árunum 2014 til 2016 og skoraði 30 mörk í 81 leik áður en hann hélt til Kína. Hann lagði skóna á hilluna árið 2021.