Mohamed Salah, fyrrum leikmaður Liverpool og goðsögn félagsins, gæti fengið tyrkneskan ríkisborgararétt og sérstaka heiðursorðu fyrir þau miklu áhrif sem hann hefur haft í landinu.
Salah gekk til liðs við Trabzonspor síðasta sumar eftir níu ár hjá Liverpool. Egyptinn hefur farið frábærlega af stað í Tyrklandi og skorað átta mörk í fyrstu tíu deildarleikjum sínum.
Samkvæmt Mohamed Kaoud, blaðamanni BBC í Arabíu, stendur til að veita Salah tyrkneskan ríkisborgararétt ásamt eiginkonu hans og þremur börnum. Þá á hann einnig að fá sérstaka orðu frá ríkinu fyrir framlag sitt til íþrótta og ferðaþjónustu í Tyrklandi.
Koma Salah hefur haft mikl áhrif í Tyrklandi, til að mynda á ferðaþjónustu. Fleiri flugferðum hefur verið bætt við milli Tyrklands og Egyptalands, svo dæmi sé tekið.