433

Skaut til baka á Van Dijk næstum ári síðar

Mynd
Getty Images

Piero Hincapie, varnarmaður Arsenal, virðist hafa skotið á Virgil van Dijk, fyrirliða Liverpool, eftir 1-0 sigur Arsenal á Anfield um helgina.

Hincapie birti myndir frá leiknum á Instagram með textanum „Ég gleymi engu“ en ein myndanna vakti sérstaka athygli.

Þar mátti sjá nærmynd af gullmerki ensku úrvalsdeildarinnar á treyju Arsenal, sem sýnir að félagið er ríkjandi Englandsmeistari.

Van Dijk hafði sjálfur birt sambærilega mynd eftir markalaust jafntefli Liverpool og Arsenal í janúar síðastliðnum. Þá var Liverpool ríkjandi meistari og töldu margir myndina vera skot á Arsenal.

Stuðningsmenn Arsenal telja Hincapie því hafa verið að svara Hollendingnum í sömu mynt eftir sigurinn um helgina.