Trent Alexander-Arnold, varnarmaður Real Madrid, er ekki á leið aftur til Liverpool þrátt fyrir orðróma þess efnis undanfarna daga.
Fabrizio Romano greinir frá þessu en Englendingurinn hefur átt erfitt uppdráttar hjá Real Madrid síðan hann yfirgaf Liverpool sumarið 2025.
Alexander-Arnold hefur þá átt í harðri samkeppni við Federico Valverde og Denzel Dumfries um stöðu hægri bakvarðar hjá spænska liðinu á þessari leiktíð.
Romano segir forráðamenn Liverpool ekki hafa rætt um að fá Alexander-Arnold og þá hafa hann og Real Madrid ekki áhuga á að slíta samstarfinu sem stendur. Kappinn vill berjast fyrir sæti sínu hjá spænska stórliðinu.