433

Nýjar nærfataauglýsingar vekja mikla athygli

Mynd

Jude Bellingham, miðjumaður Real Madrid og enska landsliðsins, hefur vakið athygli utan vallar eftir að hafa setið fyrir í nýrri nærbuxnaauglýsingu fyrir Calvin Klein.

Hinn 23 ára gamli Englendingur fetar þar í fótspor David Beckham og situr fyrir á nærbuxunum einum fata í auglýsingaherferð sem tekin var upp í Madríd síðasta sumar.

Mynd

„Ég hafði mjög gaman af þessu verkefni. Mér líkaði hugmyndin um að sjálfstraust byrji á því að líða vel í eigin skinni,“ sagði Bellingham.

Bellingham hefur einnig verið áberandi innan vallar en hann skoraði sitt 50. mark fyrir Real Madrid gegn Racing Santander um helgina.

Hann náði þeim áfanga í aðeins 154 leikjum og hefur þar með skorað fleiri mörk fyrir félagið en goðsögnin Zinedine Zidane, sem gerði 49 mörk í 227 leikjum.