Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid, fór fögrum orðum um Harry Kane, framherja Bayern Munchen, fyrir leik liðanna í Meistaradeildinni á morgun.
Kane hlaut Ballon d'Or í síðustu viku eftir frábært tímabil með Bayern og enska landsliðinu.
„Ég vil fyrst óska honum til hamingju með Gullknöttinn sem hann á svo sannarlega skilið. Hann er ótrúlegur leikmaður og ég hef alltaf verið hrifinn af honum,“ sagði Simeone.
„Hann hefur þroskast mikið sem leikmaður og fundið bestu stöðurnar fyrir sig án þess að missa markanefið.“
Atletico hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu og unnið átta af síðustu níu leikjum sínum. Liðið er þó aðeins með fjögur stig eftir þrjá leiki í Meistaradeildinni.
Bayern er með fimm stig en liðin mætast á heimavelli Atletico annað kvöld.