433

Heiðar Austmann fór hamförum á lyklaborðinu: Óskaði þess að menn fengju pláguna og fær bágt fyrir - „Í alvöru? Þú getur betur“

Mynd

Útvarpsmaðurinn Heiðar Austmann er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum þegar kemur að enska boltanum, þá aðallega Liverpool.

Stuðningsmenn Liverpool voru ósáttir við dómarann Andy Madley í leiknum gegn Arsenal í gær. Englandsmeistararnir unnu 0-1 á Anfield en vildi Liverpool til að mynda fá eitt ef ekki fleiri víti í leiknum.

Margir stuðningsmenn Liverpool fóru mikinn á samfélagsmiðlum og lét Heiðar sitt ekki eftir liggja. Hefur hann birt sex færslur um leikinn á samfélagsmiðlinum X.

„Arsenal dómsragrínið heldur áfram. LFC rændir víti,“ skrifaði Heiðar meðal annars og tók svo dýpra í árinni. 

„Ég vona að allir Arsenal leikmenn og Andy Maddley fái pláguna. Ógeðslegt lið og ógeðslegur dómari,“ skrifaði hann.

Fengu þessi ummæli hans nokkur mikil viðbrögð og like. „Í alvöru? Þú getur betur“ skrifaði Pétur Örn til að mynda undir hana.

Býst Heiðar þá við að dómarasamtökin á Englandi muni biðja Liverpool afsökunar. 

„Hvenær kemur PGMOL afsökunarbeiðnin. Ég spái því að hún komi á morgun.“