Kai Havertz, sóknarmaður Arsenal, skráði sig í sögubækur ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann tryggði liðinu 1-0 sigur gegn Liverpool á Anfield í gær.
Þjóðverjinn skoraði eina mark leiksins á 16. mínútu eftir sendingu frá Declan Rice og batt þar með enda á 14 ára bið Arsenal eftir deildarsigri á Anfield.
Markið var jafnframt það 46. hjá Havertz í ensku úrvalsdeildinni og er hann nú orðinn markahæsti Þjóðverjinn í sögu deildarinnar.
Havertz tók þar með fram úr Ilkay Gundogan, fyrrverandi miðjumanni Manchester City, sem skoraði 45 mörk í deildinni.
Havertz skoraði 19 mörk fyrir Chelsea áður en hann gekk til liðs við Arsenal árið 2023 en hefur nú skorað 27 mörk fyrir Lundúnafélagið í úrvalsdeildinni.
Sigurinn kom Arsenal á topp deildarinnar, þremur stigum á undan Manchester City.