433

Fötin gáfu sig undan brjóstunum í beinni útsendingu - Tók ekki eftir neinu fyrr en nokkru síðar

Mynd

Myndband af ítölsku sjónvarpskonunni Marika Fruscio, þar sem hún lendir í heldur vandræðalegu atviki í beinni útsendingu, er á miklu flugi á samfélagsmiðlum. Daily Star fjallar um málið.

Fruscio, sem er 47 ára, var að fjalla um fótbolta á ítölsku sjónvarpsstöðinni 7 Gold fyrir um áratug þegar hún beraði óvart annað brjóst sitt.

Mynd

Sjónvarpskonan virtist ekki átta sig á því hvað hafði gerst og hélt áfram að ræða fótboltann eins og ekkert væri. Þegar hún loks tók eftir þessu lagaði hún kjólinn í snarhasti.

Vandræðin voru þó ekki úr sögunni því kjóllinn hélt áfram að valda henni vandræðum út útsendinguna.

Fruscio er enn áberandi í ítalskri knattspyrnuumfjöllun og er mikill stuðningsmaður Napoli. Þá er hún með hátt í milljón fylgjendur á Instagram þar sem hún birtir reglulega myndir úr starfi sínu og einkalífi.

Mynd