Everton vann ansi öflugan útisigur á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Framherjinn Thierno Barry gerði eina mark leiksins snemma í seinni hálfleik og fer Everton þar með upp í sjöunda sæti með 13 stig.
Newcastle er í þrettánda sæti með tveimur stigum minna.