Eiður Smári Guðjohnsen var að störfum fyrir Sýn Sport á Anfield yfir leik Liverpool og Arsenal um helgina. Rifjaði hann upp stundir á leikvanginum sem leikmaður.
Það barst meðal annars í tal hjá honum og Hjörvari Hafliðasyni þegar Eiður klikkaði á færi með Chelsea gegn Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar 2005. Mark hefði sent Liverpool úr leik en liðið endaði á að vinna titilinn með sögulegum sigri á AC Milan í úrslitaleiknum í Istanbúl.
„Takk fyrir að minna mig á það,“ sagði Eiður í útsendingunni og hló. „Þetta er ótrúlegt. Þegar ég kem hingað, og ég hef komið nokkrum sinnum í þessari vinnu… það er svo mikið þakklæti í fólkinu. „Takk fyrir að klúðra þessu færi!“ Svona er þetta bara.“