Brotist var inn á heimili Eder Militao, varnarmanns Real Madrid, á meðan liðið mætti Barcelona í spænsku deildinni um síðustu helgi.
Spænski miðillinn El Mundo greinir frá þessu en þjófarnir höfðu á brott með sér úr, skartgripi og töskur að verðmæti um 350 þúsund evra.
Militao sat á varamannabekk Real Madrid í leiknum en þjófarnir komust inn um baðherbergisglugga á þriðju hæð hússins og létu greipar sópa um svefnherbergi hans.
Það sem vekur sérstaka athygli er að fjölskylda Brasilíumannsins var heima á meðan innbrotið átti sér stað. Fjölskyldumeðlimir sátu á neðstu hæðinni og horfðu á leikinn án þess að verða varir við þjófana.
Innbrot á heimilum knattspyrnumanna hafa verið nokkuð tíð á Spáni undanfarin ár. Pierre-Emerick Aubameyang kjálkabrotnaði meðal annars þegar vopnaðir ræningjar réðust inn á heimili hans árið 2022.