Arsenal, Manchester United og Liverpool hafa öll áhuga á Lennart Karl, 18 ára leikmanni Bayern Munchen.
Þýski blaðamaðurinn Christian Falk greinir frá þessu en ensku félögin hafa öll spurst fyrir um stöðu leikmannsins hjá Bayern.
Karl hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með þýska stórliðinu en hann hefur skorað tíu mörk og lagt upp önnur tíu í 52 leikjum. Hann getur bæði spilað á miðjunni og úti á kanti.
Bayern hefur þó engan áhuga á að selja Karl og vill þess í stað semja við hann til lengri tíma. Núverandi samningur hans gildir til sumarsins 2029 en hann er metinn á yfir 50 milljónir punda sem stendur.
Michael Ballack, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands, er umboðsmaður Karl.