433

Arsenal gagnrýnt eftir vandræðalega uppákomu á Emirates

Mynd
GettyImages

Vandræðaleg mistök áttu sér stað fyrir leik Arsenal og Aston Villa í ensku úrvalsdeild kvenna um helgina þegar mínútuþögn var trufluð.

Leikmenn beggja liða höfðu komið saman við miðju vallarins til að minnast þeirra sem hafa fallið í stríðum, í tilefni af minningardegi breska hersins þann 11. nóvember.

Skömmu eftir að þögnin hófst fór hins vegar stuðningsmannalag Arsenal, Angel eða North London Forever, að hljóma úr hátalarakerfi vallarins.

Leikmenn Arsenal litu undrandi hver á annan og stuðningsmenn vissu ekki hvort þeir ættu að syngja með eða ekki.

Arsenal hefur hlotið nokkra gagnrýni fyrir, en ljóst er að um mannleg mistök var að ræða.