Ruben Amorim, stjóri AC Milan, hefur áhuga á að fá Leny Yoro, varnarmann Manchester United, til liðs við sig í janúar.
Ítalski miðillinn Calciomercato greinir frá þessu en Amorim þekkir Frakkann vel frá tíma sínum hjá United. Yoro lék stóra rullu undir stjórn Portúgalans.
Mynd
Getty Images
Yoro, sem er tvítugur, hefur átt erfitt uppdráttar undir stjórn Michael Carrick og hefur þá ekki alltaf fengið að spila sína stöðu í hjarta varnarinnar.
Milan vill styrkja vörnina eftir meiðsli Matteo Gabbia og er Yoro ofarlega á óskalistanum.
Talið er að Milan gæti fengið Yoro fyrir 35-40 milljónir punda en United keypti hann frá Lille fyrir 52 milljónir punda árið 2024.
Einnig hefur verið rætt um að United gæti lánað hann í janúar.