Leik Tenerife og Andorra í spænsku B-deildinni var hætt í uppbótartíma í dag eftir að Jesus de Miguel, framherji Tenerife, varð fyrir alvarlegum meiðslum.
Staðan var 2-2 þegar Jesus Owono, markvörður Andorra, hljóp langt út úr marki sínu og lenti í harkalegu samstuði við De Miguel nærri miðju vallarins. Sá síðarnefndi missti meðvitund og hneig til jarðar.
Leikmenn beggja liða kölluðu strax eftir læknisaðstoð og nokkrir þeirra brustu í grát. Owono fékk beint rautt spjald en dómarinn ákvað að flauta leikinn af.
De Miguel var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús þar sem hann var lagður inn á gjörgæsludeild. Spænskir fjölmiðlar greina frá því að hann hafi farið í hjartastopp á leiðinni á sjúkrahús en tekist hafi að endurlífga hann.
Tenerife hefur staðfest að líðan leikmannsins sé stöðug en að ástandið sé alvarlegt.
Þrjú rauð spjöld fóru á loft í leiknum en Andorra hafði jafnað metin eftir að hafa lent 2-0 undir.