Alfie Haaland, faðir Erling Braut Haaland, hefur tjáð sig um stöðu Manchester City eftir að félagið var fundið sekt um brot á fjármálareglum og gæti átt yfir höfði sér þunga refsingu.
City hefur áfrýjað niðurstöðunni en meðal þeirra refsinga sem hafa verið nefndar er stigafrádráttur eða jafnvel fall úr ensku úrvalsdeildinni.
„Þetta eru auðvitað alvarlegar ásakanir en nú er áfrýjun í gangi. Við verðum að halda ró okkar og sjá hvernig þetta fer,“ sagði Alfie í samtali við Viaplay.
Hann segir son sinn ekki láta málið hafa áhrif á sig. „Erling hugsar fyrst og fremst um að spila fótbolta. Ég held að við sem stöndum utan vallar hugsum meira um þetta.“
Alfie var einnig spurðurút í hvað yrði um son hans ef City félli um deild en vildi ekki velta því fyrir sér að svo stöddu.
„Við skulum bíða eftir niðurstöðu áfrýjunarinnar. City telur sig hafa sterk sönnunargögn til að sýna fram á sakleysi sitt,“ sagði hann.