Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir sviðið í Íþróttavikunni, vikulegum þætti á 433.is
Það virðist ekki geirneglt að Ólafur Ingi Skúlason þjálfi Breiðablik áfram. Liðið hefur valdið vonbrigðum í deildinni en varð bikarmeistari á dögunum.
„Það hefur enginn komið út og staðfest það að Ólafur Ingi verði áfram með Breiðablik,“ sagði Hörður í þættinum.
„Það er eitthvað sem gæti gerst, þó mér myndi finnast það mjög furðulegt eftir bikarmeistaratitilinn. Sögurnar hafa verið á þann veg. Það róa ekki allir í sömu átt í Smáranum, hvort það þurfi að skipta um skipstjóra eða stýrimenn verður að koma í ljós.“
Þátturinn er í spilaranum.