433

Telur að þessi leikmaður United hafi hraunað yfir Martinez í fluginu

Mynd
Lisandro Martinez í viðtalinu fræga.

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir sviðið í Íþróttavikunni, vikulegum þætti á 433.is

Lisandro Martinez leikmaður Manchester United lét forráðamenn félagsins heyra það á dögunum fyrir að sýna ekki metnað og kaupa inn fleiri leikmenn til að bæta liðið.

„Þetta er smá skrýtið, að leikmaður kalli félagið sitt svona út. Mér finnst ekki ólíklegt að þetta hafi verið rætt milli eldri leikmanna liðsins áður en þetta er gert.

Það sem böggar mig er að þetta sé Lisandro Martinez að rífa kjaft, því hann er búinn að vera ömurlegur,“ sagði Hörður.

„Hann kannski spilar eina af þeim stöðum sem þarf að styrkja. Þetta eru góðir punktar úr vitlausri átt,“ sagði Helgi.

„Ég ætla að giska á að það hafi verið Harry Maguire, hann er mikill liðsmaður,“ sagði Hörður.

Síðan hefur Martinez beðist afsökunar og málið er sagt leyst.

Þátturinn er í spilaranum.