Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir sviðið í Íþróttavikunni, vikulegum þætti á 433.is
Sögusagnir eru á þann veg að Heimir Guðjónsson sé að taka við ÍA og kveðji þar með Fylki eftir eitt ár í Lengjudeildinni.
„Það bendir allt til þess að Heimir fari og Fylkismenn virðast vita það og eru farnir að horfa í kringum sig,“ sagði Hörður.
Lárus Orri Sigurðsson er þjáfari ÍA og hefur gert vel. Hann er með samning áfram.
„Hann bjargaði liðinu frá falli, er að tryggja 4.-5. sætið núna og ætti klárlega skilið að fá að taka næsta skref, reyna að koma þeim í Evrópu. Hann má verða ansi fúll ef svona fer, sér í lagi ef við horfum til þess að fjórða sætið hefur oftast gefið Evrópusæti,“ sagði Hörður og Helgi tók undir:
„Það er illa vegið að honum.“