433

Spyr hvort eitthvað stolt sé eftir - „Létu girða niður um sig“

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir sviðið í Íþróttavikunni, vikulegum þætti á 433.is

Það er mikið undir í fallbaráttunni í Bestu deildinni í dag þegar Þór og KA verða í eldlínunni. Um næstsíðustu umferð er að ræða og þarf Þór, sem mætir Stjörnunni, helst að vinna upp forskot KA, sem mætir Val, í þessari umferð.

„Þetta er tækifærið fyrir Þór,“ sagði Helgi. 

Valur og Stjarnan hafa valdið gríðarlegum vonbrigðum á leiktíðinni og ekki víst hvernig þau mæta til leiks gegn fallbaráttuliðunum.

„Spurningin er hvort það sé eitthvað stolt til hjá leikmönnum Vals og Stjörnunnar eftir að þau létu girða niður um sig á heimavelli í síðustu umferð.

Manni finnst þetta vera smá karakterspróf. Þú getur ekki tapað fyrir öllum lökustu liðum deildarinnar á sannfærandi hátt í lok tímabils,“ sagði Hörður.