433

Ekki fyrsta uppákoman undir stjórn Arnars - „Eru að díla við stress og ýmislegt í sínum persónulegu lífum“

Mynd

Arnar Gunnlaugsson lýsti gríðarlegum vonbrigðum með agabrot landsliðsmanna á dögunum í viðtalsbroti sem birtist á Vísi í gær. Miðillinn birti ítarlegra viðtal við landsliðsþjálfarann í morgun.

Talið er að nokkrir leikmenn Íslands hafi stundað fjárhættuspil og haft áfengi um hönd eitt kvöld í nýafstöðnu landsleikjaverkefni. Margar sögusagnir hafa farið á flakk um hvaða leikmenn þetta voru, hvernig allt fór nákvæmlega fram og jafnvel hvort þetta sé fyrsta slíka uppákoman.

„Það hafa óneitanlega farið sögur á kreik síðan þetta varð opinbert, maður hefur meðal annars heyrt að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem leikmenn gerast sekir um agabrot undir þinni stjórn í landsliðinu. Er það rétt?“ spurði fréttamaðurinn Aron Guðmundsson í viðtalinu. 

„Ekki svona agabrot, það kom einu sinn fyrir í Skotlandi en var lítilvæglegt. Það var ekki alveg ljóst af minni hálfu,“ sagði Arnar við því. 

Hann setur ekki nákvæmar reglur um áfengisdrykkju í verkefnum en treystir því að menn beiti heilbrigðri skynsemi.

„Er sagt nákvæmlega milli leikja: „Það á ekki að drekka áfengi,“? Nei það er ekki svo, ég trúi ekki á svoleiðis þvælu þegar þú ert með atvinnumenn og fullorðið fólk. Ef þú ert að drekka á milli leikja ertu ekki alvöru atvinnumaður. En það sem gerðist þarna á sér aðeins lengri og dýpri aðdraganda,“ sagði Arnar og var beðinn um að útskýra mál sitt nánar.

„Ég held að mannskepnan hafi ýmsa kosti og ýmsa galla. Leikmenn, í þessu tilfelli því við erum að tala um þá, eru að díla við stress og ýmislegt í sínum persónulegu lífum. Hver hefur sinn djöful að draga. Fyrstu viðbrögðin mín voru að senda þá heim. Svo taka við samtöl og þess háttar og þá átta ég mig á að þetta eru bara strákarnir mínir og mér þykir ótrúlega vænt um þá. 

Fólk fór að opna sig aðeins og þetta var aðeins dýpra en eitthvað prakkarastrik. Þá tók ég þann pól í hæðina að hjálpa viðkomandi. Tökum á þessum ákveðnu vandamálum í sameiningu. Auðvelda lausnin í þessu máli hefði að ég hefði verið aðalhetjan og stóri kallinn og rekið menn heim með skömm. Ég hefði komið vel út úr því, en það skiptir bara ekki máli.“

Viðtalið í heild