433

Arteta tjáði sig um niðurskurðinn

Mynd
Mikel Arteta, stjóri Arsenal. Getty Images

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að ákvörðun félagsins um að fækka allt að 60 störfum hafi verið tekin með það að markmiði að bæta reksturinn og stuðla að frekari árangri.

Arsenal tilkynnti starfsfólki sínu í vikunni að til stæði að fækka störfum um allt að sjö prósent. Niðurskurðurinn nær þó ekki til þjálfara eða annarra starfsmanna sem koma beint að karla- og kvennaliðum félagsins.

„Mér var tjáð að þetta væri niðurstaðan sem hlaust við greiningu á því hvernig við gætum haldið áfram að bæta okkur og þróast. Stundum þarf að taka erfiðar ákvarðanir,“ sagði Arteta um málið í dag.

Ákvörðunin hefur vakið athygli enda varð Arsenal Englandsmeistari á síðustu leiktíð og Arteta skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning í síðustu viku. Samningurinn tryggir honum hærri laun en áður.