433

Victoria Beckham opinberar hvað David gerir alltaf þegar hann vill að fólk yfirgefi matarboðið - Sjálf segir hún þetta ófyrirgefanlegt

Mynd

Knattspyrnugoðsögnin David Beckham er með sérstaka aðferð til að losna við gesti þegar honum finnst matarboð hafa staðið nógu lengi.

Victoria Beckham, eiginkona hans, greinir frá þessu í myndbandi á Instagram þar sem hún fer yfir helstu reglur sínar þegar kemur að því að halda matarboð.

„Vitið þið hvað gerist á heimili Beckham-fjölskyldunnar þegar David vill að fólk fari? Hann fer bókstaflega um og blæs á kertin í von um að fólk fatti hvað hverju hann er að reyna að koma á framfæri,“ segir Victoria.

Hún er sjálf með ákveðnar skoðanir á því hvernig eigi að halda matarboð og segir meðal annars ófyrirgefanlegt að bjóða gestum upp á pappírsservíettur. Þá eigi farsímar alls ekki heima á matarborðinu.