Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari hefur opnað sig um agabrot nokkurra landsliðsmanna Íslands í nýliðnu verkefni. Talið er að áfengi hafi verið haft um hönd eina kvöldstund milli þriðja og fjórða leiks þess.
Meira
Arnar opnar sig um fyllerí landsliðsmanna í miðju verkefni - „Undirbúningurinn fór til fjandans“
Arnar lýsti gífurlegum vonbrigðum vegna málsins í samtali við Vísi. Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net, stakk niður penna í kjölfar viðtals Vísis við Arnar og birti pistil undir yfirskriftinni „Orðin innantóm?“
„Kyndilberar íslenska landsliðsins í dag sleppa ekki við samanburð við gullkynslóðina og málið hefur kveikt í umræðu um virðingarleysi gagnvart Arnari,“ skrifar Elvar meðal annars.
„Með færri sigrum og verri árangri hefur eftirspurn eftir miðum á landsleiki minnkað verulega. Nokkrir leikmenn hafa sagt að sökin sé þeirra, þeir þurfi að ná árangri til að landsmenn flykkist á bak við þá.
Í viðtölum hafa þeir talað um að þeir hafi trú á því að geta látið drauminn rætast og komið Íslandi á stórmót að nýju. Þangað sé stefnan sett. Það er því skiljanlegt að efasemdarfræjum sé stráð eftir þetta bakslag. Það er verk að vinna fyrir landsliðið að sanna að orð þeirra séu ekki innantóm. Það þurfa þeir að gera inni á vellinum, og líka utan hans,“ skrifar Elvar enn fremur.
Ísland mætir næst til leiks í næsta mánuði og getur þá tryggt sér toppsæti í riðli sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar.