Barcelona og Real Madrid hafa bæði mikinn áhuga á Pedro Porro, hægri bakverði Tottenham, og gætu reynt að kaupa hann næsta sumar.
Hinn 27 ára gamli Porro hefur verið í herbúðum Tottenham frá árinu 2023 og skrifaði undir nýjan fimm ára samning í sumar. Hann er þó sagður spenntur fyrir því að snúa aftur til Spánar.
Tottenham vill ekki selja Porro en ku vilja fá um 75 milljónir punda fyrir Spánverjann ef svo fer. Það myndi gera hann að dýrasta hægri bakverði sögunnar.