Jadon Sancho, fyrrverandi leikmaður Manchester United, gæti verið á leið til Getafe á Spáni. Hann hefur verið án félags síðan samningur hans við United rann út í sumar.
Mundo Deportivo Á Spáni og fleiri miðlar greina frá því að Getafe hafi mikinn áhuga á að fá Sancho, sem er 26 ára, til félagsins. Jose Bordalas, stjóri liðsins, er sagður mikill aðdáandi Englendingsins.
Helsta hindrunin er þó launakröfur Sancho, sem vill um fjórar milljónir evra á ári. Getafe þyrfti því að finna leið til að fjármagna komu hans og rúma launin innan reglna spænsku deildarinnar.
Sancho hefur verið orðaður við fjölmörg félög síðustu mánuði, meðal annars Dortmund, Roma og Fiorentina, en ekkert hefur orðið úr félagaskiptum.
Getafe fékk Dani Carvajal frá Real Madrid fyrr í mánuðinum og gæti nú bætt öðru stóru nafni við.