433

Fleiri menn opnað sig við hann um að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi

Mynd

Andy Carroll, fyrrverandi landsliðsmaður Englands, segir að nokkrir þekktir knattspyrnumenn hafi haft samband við sig og greint frá því að þeir hafi einnig orðið fyrir kynferðisofbeldi.

Carroll, sem er 37 ára, greindi nýverið frá því að danskennarinn Kevin Adams hefði brotið kynferðislega gegn honum árið 2019, þegar hann var sofandi. Adams var dæmdur í 20 mánaða fangelsi árið 2023.

Í viðtali við Piers Morgan sagði Carroll að það hefði reynst honum afar erfitt að stíga fram, en viðbrögðin hefðu verið ótrúlega jákvæð.

„Fólk sem ég þekki mjög vel hefur komið til mín og sagt mér frá svipuðum hlutum. Líka þekktir knattspyrnumenn. Þeir hafa hringt og þakkað mér,“ sagði Carroll.

Hann segir reynsluna hafa haft mikil áhrif á líf sitt og að hann muni líklega aldrei jafna sig að fullu. Stuðningur fjölskyldu, vina og liðsfélaga hafi þó hjálpað honum mikið.