433

Fjörugt ástarlíf stjörnunnar vekur athygli - Fyrirsæta, systir Beckham og ásökun um framhjáhald

Mynd

Jermain Defoe, fyrrverandi framherji Tottenham, West Ham og enska landsliðsins, hefur ekki síður verið áberandi í slúðurpressunni en á knattspyrnuvellinum í gegnum tíðina.

Defoe, sem varð 44 ára á dögunum, er tíundi markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Daily Star rifjar nú upp skrautlegt ástarlíf kappans, en hann hefur meðal annars verið með fyrirsætum, söngkonum og systur David Beckham.

Defoe var um tíma með Joanne Beckham, yngri systur David, og síðar fyrirsætunum Charlotte Mears og Danielle Lloyd. Þá átti hann einnig í samböndum við raunveruleikastjörnurnar Imogen Thomas og Chantelle Houghton, auk söngkonunnar Alexandra Burke.

Árið 2022 kvæntist Defoe snyrtifræðingnum Donnu Tierney við glæsilega athöfn sem kostaði um 200 þúsund pund. Hjónabandið entist hins vegar aðeins í sex mánuði og sakaði Tierney hann um framhjáhald, sem Defoe neitaði.

Síðan þá hefur kappinn verið orðaður við nokkrar konur til viðbótar og síðast sást til hans með Nadine Rider í London í sumar.

Defoe skoraði alls 162 mörk í ensku úrvalsdeildinni og lék 57 landsleiki fyrir England á sínum tíma.

Umfjöllun Daily Star í heild